Sigurlín Brasilíufari segir frá

Þann fimmtánda febrúar árið tvöþúsund og sex gerast undarlegir en þó ekki alóvenjulegir atburðir á Íslandi nálægt Mosfellsbæ, nánar tiltekið í Húsahverfinu í Grafarvoginum. Þennan dag fer ung stúlka að nafni Sigurlín á vit fjarlægra landa. Hún mun vaða eld og brennistein áður en hún kemst aftur heim en hún er viss um að förin verði þess virði. Fyrirheitna landið er Brasilía!

Nafn:
Staðsetning: Florianópolis, Santa Catarina, Brazil

sunnudagur, ágúst 20, 2006

ojojojojojojojojo

GUD MINN GÓDUR!!! Hvad var sigurlín atladóttir ekki ad gera? jújú, hún ákvad ad klippa á sér hárid sem endadi í ljótasta topp sem sogur fara af! Ég er ekki ad grínast...toppurinn vaeri betri ef einhver hefdi klippt hann med sláttuvél, lokud augun og hendurnar fyrir aftan bak! ég skil hreinlega ekki hvernig mér datt í hug ad hleypa sjálfri mér í hárid á mér med skaeri, hef alltaf grunad ad thad vaeri mjog slaem hugmynd...mig langadi bara ekki ad fara í klippingu hérna afthví thad eru allir med somu klippinguna og hún er ljót, thannig audvitad er miklu betra ad aeda bara í thetta med skaerum! ádur var thad, svona, svolítid úr sér vaxid en samt ekkert ad deyja úr ljótleika neitt, núna er thad úr sér vaxid og med ógedslegan of stuttan missídan topp...gud minn gud min gódur hvad hárid á mér mun vera sleikt aftur med hárbandi naestu 3 mánudina medan thetta slys er ad jafna sig...afthví nei ég aetla ennthá ekki á hárgreidlustofu hérna, thaer reyna orugglega bara ad gera ljótu klippinguna í hárid sem er eftir og thad mun verda verra!

bless, ekki í gódu skapi...í sjokki yfir minni eigin heimsku og ad ég hafi 3 haett vid ádur en ég hugsadi, mjahh thad vex thá bara aftur.......GUD MINN GÒDUR!!!!! thad vex aftur en medan thad er ad vaxa er thad ÓGEDSLEGT!!! ojojojojoj ohh ég myndi gráta ef ég vaeri ekki svoan pirrud1

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mundu að þú ert yfirfull af náttúrulegri fegurð Silla mín. Ljótur toppur til eða frá er aukaatriði.
Kveðja frá mömmu í miðju barnaafmæli.

3:32 e.h.  
Blogger silla said...

ok, fyrsta sjokkid er gengid yfir og ég er núna búin ad uppgotva hvernig ég get reddad thessu án skaera eda hárbands (sem verdur thó líka notad óhóflega), komin úr mesta nidurdrepingskastinu, thad datt enginn í gólfid af hlátri í skólanum í dag og saetur strákur brosti til mín med toppinn og allt thannig neydarástandinu er aflýst, sjúkket

og takk mamma :) vona ad thad sé stud í ammlinu!

5:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hahahah.. nu hlo eg upphatt, svo hatt ad tad la vid ad eg slaei a laeri. tu ert aedi silla:)

6:24 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hahahah.. nu hlo eg upphatt, svo hatt ad tad la vid ad eg slaei a laeri. tu ert aedi silla:)

6:24 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Weirdo ef ljótt er flott í Brasilíu hvað er þá flott á Íslandi

Chario

3:53 e.h.  
Blogger Ljóni said...

"mig langadi bara ekki ad fara í klippingu hérna afthví thad eru allir med somu klippinguna og hún er ljót"


Bwahahahahh!!! Hefði ég setið á stól þá myndi ég þottþétt hafa dottið af honum.

3:02 e.h.  
Blogger Tinnsi said...

Heyrðu! Ég held að pirringsskýjið sem var yfir Florianopolis hafi færst yfir til Chicago.

Til hamingju með afmælið sæta! Vona að þú hafir átt góðan dag.

Tinna

10:40 e.h.  
Blogger silla said...

já thórdur minn, svona fer madur ad hugsa thegar madur kemur í nýtt samfélag...hérna er alls konar dót í tísku sem er svo hryllilega ljótt á íslandi ad ef madur myndir nota thad úti vid myndi fólk hér um bil hlaeja upp í opid gedid á manni!

og kannski er thad sem ég nota álitid alveg rosalega ljótt hérna, ég veit thad ekki

thetta sýnir manni svona ad sannleikurinn er aldrei algildur, thad sem einum finnst ljótt finnst odrum flott

9:13 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home