Sigurlín Brasilíufari segir frá

Þann fimmtánda febrúar árið tvöþúsund og sex gerast undarlegir en þó ekki alóvenjulegir atburðir á Íslandi nálægt Mosfellsbæ, nánar tiltekið í Húsahverfinu í Grafarvoginum. Þennan dag fer ung stúlka að nafni Sigurlín á vit fjarlægra landa. Hún mun vaða eld og brennistein áður en hún kemst aftur heim en hún er viss um að förin verði þess virði. Fyrirheitna landið er Brasilía!

Nafn:
Staðsetning: Florianópolis, Santa Catarina, Brazil

sunnudagur, júlí 02, 2006

Droga! (Djofiullinn!)

Djofulsins andskotans helvítis fíbbl!!!
Nei ég er ekki ad tala um leikinn (sem ég segi frá seinna), heldur thad ad thad var haett vid Nordeste ferdina...ferdina sem ég var búin ad hlakka til mest af ollum (nema kannski amasón) og thar sem ég hefdi séd svo ótrúlega svala stadi! Thetta thýdir ad ég mun ekki fara til Rio de Janeiro, ekki fara til Salvador, ekki fara til Ouro Preto, Porto Seguro, Brasilíuborgar, Belo horizonte, Fortaleza og bara almennt mun ekki kynnast nordur Brasilíu! Ohh ég er svo pirrud ad ég gaeti dáid! En nújaeja, í stadin mun ég fara til São Paulo og Açatuba ad heimsaekja Marionnu. Ég er samt ekkert rosalega hamingjusom med thetta!

Nújaeja thá ad leiknum. Ég hef aldrei á minni lífsfaeddri aevi tekid fótboltaleik svona alvarlega! Eftir ad vid topudum sat ég í svona 2 mínútur hreifingarlaus og horfdi á skjáinn í algjorri vantrú...svona hlutir eiga bara ekki ad gerast...OK ég skal alveg vidurkenna thad ad their voru ekkert ad spila eitthvad frábaerlega, en samt! Thórdur ég heyrdi um studninginn thinn og ég thakka thér og vona bara ad thú missir ekki alveg álit á Brasilíumonnum :)

Hérna í Brasilíu er dót sem er voda svipad myspace en heitir Orkut og madur er hreint ekki madur med monnum ef madur er ekki med eitt svona. Audvitad er ég med svona og einn gódan vedurdag fékk ég skilabod frá Brasilískum manni sem sagdist vera afkomandi Íslendinga í Brasilíu. Hann er sumsé einn af Sudur-Íslendingunum ef má kalla thá svo, held their séu kalladir Brasilíufararnir. Hann baud mér í hádegismat med odrum ''Brasilískum-Íslendingum'' í tilefni af 17 júní í Curitiba, akkurat helgina sem ég fór thangad. Thar hitti ég thetta fólk sem reyndist vera hid ágaetasta og raeddi vid thá um Ísland og Skandinavíu og allt milli himins og jardar, svo song ég eitthvad af íslenskum logum fyrir thau og adstodadi thau vid ad laera íslensku. Ekki hafdi ég búist vid ad hitta einn af Brasilíuforunum en thetta fannst mér samt alveg fremur snidugt!
*djúsí*

Bless!

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Silla,
þakka þér kærlega fyrir kortið. Mér þótti mjög vænt um að þú skyldir hafa munað eftir að senda mér kort. Það er nú ekki á hverjum degi sem kort berst frá Brasilíu. Mér sýnist á skrifum þínum að þú sért stödd í miðju ævintýri. Þessi heimur þinn í Brasilíu virðist að mörgu leyti ólíkur íslenskum aðstæðum. Hér hefur veðrið verið hundleiðinlegt í sumar, ef sumar skyldi kalla, það virðist ekki enn vera komið, að öðru leyti en því að það er bjart alla nóttina, en það rigndi 24 daga í júnímánuði í Reykjavík! Nú er Sólveig að koma heim á miðvikudaginn frá Hollandi, búin að vera þar tæpt ár, það verður gott að fá hana heim aftur. Fjölskyldan ætlar að hittast á ættarmóti um næstu helgi, þá skiptir auðvitað höfuðmáli að veðrið verði þokkalegt, við verðum nefnilega á tjaldstæði. Vona að ævintýrið haldi áfram hjá þér, þetta með Brasilíufarana fannst mér mjög merkilegt. Hafðu það sem allra best og njóttu dvalarinnar. Bestu kveðjur, þín frænka Lilja.

8:52 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home