Sigurlín Brasilíufari segir frá

Þann fimmtánda febrúar árið tvöþúsund og sex gerast undarlegir en þó ekki alóvenjulegir atburðir á Íslandi nálægt Mosfellsbæ, nánar tiltekið í Húsahverfinu í Grafarvoginum. Þennan dag fer ung stúlka að nafni Sigurlín á vit fjarlægra landa. Hún mun vaða eld og brennistein áður en hún kemst aftur heim en hún er viss um að förin verði þess virði. Fyrirheitna landið er Brasilía!

Nafn:
Staðsetning: Florianópolis, Santa Catarina, Brazil

sunnudagur, febrúar 26, 2006

Carnival

Carnival, jeij. Hefd ad strákar klaedi sig í kjóla, voda spes. Var ekki alveg viss um hvort mig vaeri ad dreyma eda ekki (og var eiginlega á bádum áttum hvort draumurinn vaeri thá martrod edur ei).

Fórum heim til eins stráksins thar sem fullt af drengjum voru ad klaeda sig í kjóla og vera máladir Fórum thadan nidrí bae á einhverja gotu thar sem var alveg hellingur af karlmonnum í kjólum...thad var rosalegt! Med lodnar lappirnar og bringuhárin stingandu útúr kjólunum og kinnalit oná skeggrótinni!
Thegar tolvan fer ad hlýda set ég myndir frá thessu á sídu, en í augnablikinu er hún bara med eitthvad vesen!
Thá fórum vid heim til Daníels (kaerasta Lauru, systur minnar) og fórum í búningana sem vid hoftum keypt daginn ádur. Their voru allsvadalegir! Hrikalega stórir og fyrirferdarmiklir, 17. aldar skytturnar 3 daemi og hvítar hárkollur med! Í búningunum fórum vid einhvert annad nidur i bae á einhversskonar leikvang sem var bara long gata og áhorfendapallar bádu megin vid. Thar vorum vid í escola de samba. Svona eins og madur ér í sjónvarpinu frá carnivalinu, gellur í svo gott sem engum fotum uppá vognum og fullt af fólki í eins búningum ad dansa! Nújaeja thetta gerdum vid sumsé, donsudum tharna í geng í thessum hárkollubúningum og thad var sko STUD! Svo fórum vid uppá pallana og horfdum á naestu rod fara í gegn, thetta var frábaert!
djúsí

Fórum á strondina í dag og ég fékk smá lit. Allir sogdu..iss thú ert ennthá skannahvít, svo sýndi ég theim rosalega farid mitt og thá aetludu thau ad deyja úr hlátri!

Nýjustu fréttir af baráttu minni vid moskítóflugurnar, núna ákvádu thaer ad onnur loppin á mér vaeri girnilegri en hin thannig eg er med svona 10 bitum meira á vinstri loppinni en theirri haegri! Svaka smart!

Bless

miðvikudagur, febrúar 22, 2006

Andskotans moskítóflugur

Thá er ég byrjud í skólanum, thad er ágaett. Bekkjarfélagar mínar eru reyndar svona 1-2 árum yngri en ég og thau eru ad laera eitthvad sem ég laerdi í grunnskóla en thad skadar víst ekki vegna thess ad yfirleitt botna ég ekki neitt í neinu. Thad sem ég geri í timum er ad trufla thessar 2 stelpur sem tala ensku í bekknum mínum med midasendingum, teikna myndir og reyna ad ýminda mér hvad kennarinn sé ad tala um. Skólinn byrjar kl 7:30! en hann er búinn kl 12:30 thannig thad er í lagi. Eitthvad annad en heima thar sem madur tharf ad vera í skólanum til 3-4.

Flugurnar eru á gódri leid med ad éta mig lifandi. Gaman ad segja frá tvhí ad ég sofnadi í sófanum eftir skóla og vaknadi oskrandi berjandi af mér risaskordýr sem var svo yndislegt ad skilja eftir 1 cm langan brodd í laerinu á mér og núna er ég med raudan blett thar med ca 5 cm thvermál, hrikalega smart! Og hann baetist náttúrulega bara vid hinar 87 moskítóflugustungurnar; Ójá lappirnar á mér eru fallegar, skjannahvítar og rauddoppóttar!

Fjolskyldan ákvad ad hjálpa mér ad laera portúgolsku og límdi upp litla hvíta limmida med ordum eins og porta og janela (hurd og gluggi) á videigandi stadi, thau límdu meira ad segja á hnífaporin mín og diskinni í hádegismatnum! Svona eins og ég gerdi heima á Íslandi.

bless
silla

laugardagur, febrúar 18, 2006

Komin

Thá er ég komin, lenti í gaer og fjolskyldan min er svona lika vinaleg! Ísverksmidjan er H.U.G.E.S. ! Ég sver that, hefdi aldrei getad ýmindad mér hana! Efri haedin (thar sem vid búum) er eins og svalir yfir henni, thannig madur sér alveg ofan í hana! á mánudaginn sé ég hana í gangi, thegar verid er ad vinna í henni. Ísinn er svaka gódur...jafn gódur og ítalskur ís og thá er mikid sagt, í bili er kókoshnetu uppáhaldid mitt en thau framleida yfir 60 tegundir og ég er bara búin ad smakka 4, thannig that gaeti breyst.
Systir mommu á pizzeriu og vid vorum thar adan ad borda pizzur. Fraenkan heitir Karim og er svaka kúl og artý í theirri meiningu sem má nota ordid; that er ad segja, mjog bohem og málar svaka flottar myndir og býr til flottustu lampa sem ég hef séd...mig langar ad taka einn med mér heim! Hún gerir thá úr kvenmannsgínum, hrikalega toff!
En á pizzeriunni smakkadi ég undarlegustu pizzur sem eg hef bordad! Fyrst kom svona osta salt dçmi, alveg edlilegt og svo venjuleg itolsk med osti og tómotum. Svo kom pizza med káli! ferskt kál og parmesan ostur og ítolsk skinka!!! Á eftir thví kom áleggid sem madur gerdi alltaf simaat med á dominos thegar madur var litill já, bananar! Bananar og kanill og ÍS!!!!! Ég er ekki ad grínast og thetta var gedveikt gott!! (ísinn var settur á sneidina thannig hann vera ekki bakadur med, hofum thad á hreinu) Heitir bananar og kanill og kaldur ís! hédan í frá baka ég bara svoleidis pizzur :)
En annars er ég bara nokkud hress, fjolskyldan er ad horfa á rolling stones tónleika í sjónvarpinu og ég aetla ad fara ad horfa med theim, mamma var svaka spennt yfir thví og dansadi á leidinni ad sjónvarpinu.

Bless

silla