Hugsið þetta eins og djúp og drungarleg karlmannsrödd segi þetta:
Þann fimmtánda febrúar árið tvöþúsund og sex gerast undarlegir atburðir á Íslandi nálægt Mosfellsbæ, nánar tiltekið í Húsahverfinu í Grafarvoginum. Þennan dag fer ung stúlka að nafni Sigurlín á vit fjarlægra landa. Hún mun vaða eld og brennistein áður en hún kemst aftur heim en hún er viss um að förin verði þess virði. Fyrirheitna landið er Brasilía!
